Samskipti Tyrklands og Rússlands

Erdogan boðar ný kjarnorkuver í samstarfi við Rússa

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, tilkynnti á þriðjudag að Tyrkir hyggðust ráðast í ný kjarnorkuverkefni með Rússum. Með því dýpka þeir orkusamstarf sem líklegt er að sæti gagnrýni vestrænna bandamanna á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir.