GARM

X hjá Musk semur við alþjóðleg samtök auglýsenda

X, fyrirtæki Elons Musk, hefur gert sátt í tæplega tveggja ára lagadeilu við Alþjóðasamtök auglýsenda (WFA). Þar með lýkur deilu sem milljarðamæringurinn kallaði áður „stríð“ með stuttri sameiginlegri yfirlýsingu sem gefur lítið upp um skilmála samkomulagsins.