SBU

Rússneskur dróni hæfði höfuðstöðvar SBU í Kænugarði

Rússneskur dróni hæfði aðalstöðvar úkraínsku öryggisþjónustunnar (SBU) í Kænugarði á föstudagseftirmiðdag. Beindist árásin beint að skrifstofu starfandi yfirmanns hennar, Oleksandr Poklad, en Volodímír Selenskí Úkraínuforseti kallaði árásina meðvitaða atlögu að einni mikilvægustu stjórnarbyggingu landsins.